Hvar er allt fólkið?????
Ég er mikið búin að vera að pæla hvar í ósköpunum allt fólkið er á fimmtudagskvöldunum þegar það er opið á gamla góða bauknum og böddi á 300 kall??? Hvað varð eiginlega um fimmtudags djömmin góðu?? Ég man ekki betur en að það hafi bara verið helv.... gaman að fara á fimmtudagskveldi og fá sér öllara eða tvo í góðra vina hópi...
Tja ég er alveg bit yfir þessu ÞAÐ MÆTTU FIMM Á BAUKINN Í GÆR!!!!!! Ji minn eini... það er nú reyndar farið að prófa að hafa "pub quiz" annan hvern fimmtudag og ég hvet fólk eindregið til að mæta
það er svo gaman að vera í vinnuni þegar það er einhver til þess að afgreiða!!
En já þetta er það sem ég vildi sagt hafa um þetta mál....
Gunnþór er nú farinn á miðinn að veiða fiskalinga og ég er mjög einmana þessa stundina og langar að hafa hann heima til að hjálpa mér að skreyta og baka litlar sætar smákökur og skrifa jólakort og allt jólastússið en...NEI...ég verð víst að sætta mig við að ég verð að gera þetta allt saman ein
ég nenni ekki að skrifa meir og ætla að fara að kúra hjá fallegu dóttir minni![]()
gúd næt evríbodí;)
